Leikskólinn Gullborg Rekagrandi 14, 107 Reykjavík
Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólanum Gullborg frá janúar 2019. Gullborg er 4ra deilda leikskóli við Rekagranda 14 í Vesturbæ. Aðalmarkmið leikskólastarfsins er að efla sjálfsmynd barna. Leikskólinn er í samstarfi við nær umhverfið og tekur þátt í spennandi þróunarverkefnum með leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum í hverfinu um að efla læsi barna og opna umræðu um ofbeldi. Nánari upplýsingar um starfs leikskólans sjá á heimasíðu www.gullborg.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur Leikskólakennaramenntun. Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg eða önnur reynsla af starfi með börnum. Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum Frumkvæði í starfi Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Almenn tölvukunnátta.
Góð íslenskukunnátta
Rannveig J Bjarnadóttir leikskólastjóri gsm 6939820
19.12.2018
Auglýsing stofnuð:05.12.2018
Staðsetning:Rekagrandi 14, 107 Reykjavík
Starfstegund:Fullt starf