Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Yfirmaður reksturs flutningsvirkja

VILTU LÁTA LJÓS ÞITT SKÍNA?

Við leitum að frábæru samstarfsfólki í okkar lið. Langar þig að ganga til liðs við okkur?

Við leitum að stjórnanda reksturs flutningsvirkja
- sem ber ábyrgð á rekstri tengivirkja og raflína okkar um allt land. Stýrir og ber ábyrgð á mannauði einingar, áætlanagerð og undirbúningi verkefna sem unnin eru við flutningsvirkin og
hefur umsjón með rekstrarsamningum.

Ef þú ert með háskólapróf í verkfræði eða sambærilega menntun, með reynslu af stjórnun og rekstri, tæknilega þekkingu á sviði raforku, öryggis- og umhverfisvitund og auðvitað framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni, frumkvæði og drifkraft þá erum við mögulega að leita að þér.


Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2019. Nánari upplýsingar veitir Valka Jónsdóttir, mannauðsstjóri, sími: 563-9300, netfang: mannaudur@landsnet.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfuð.

Auglýsing stofnuð13. mars 2019
Umsóknarfrestur24. mars 2019
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar