Hjúkrunarfræðingur/ Teymisstjóri geðteymis fangelsa
Vilt þú leiða mikilvægt og sérhæft geðteymi og hafa raunveruleg áhrif á þróun þjónustu fyrir viðkvæman hóp?
Ferliþjónusta réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala leitar að reynslumiklum hjúkrunarfræðingi til að taka við starfi teymisstjóra geðteymis fangelsa. Um er að ræða spennandi leiðtogahlutverk í öflugu þverfaglegu teymi þar sem faglegur metnaður, nýsköpun og samstarf eru í forgrunni.
Sem teymisstjóri munt þú leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun þjónustunnar, taka þátt í stefnumótun og skapa tækifæri til umbóta í samstarfi við fjölbreyttan hóp haghafa.
Framundan eru fjölmörg þróunarverkefni sem bjóða upp á spennandi áskoranir og góð tækifæri til starfs- og leiðtogaþróunar.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. júlí 2026 eða samkvæmt samkomulagi. Gert er ráð fyrir að teymisstjóri sinni einnig klínískum verkefnum í teyminu.
Um starfsemina:Geðteymi fangelsa er þverfaglegt teymi sem veitir heildræna, batamiðaða geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa landsins. Lögð er áhersla einstaklingsmiðaða þjónustu, samfellu í meðferð og stuðning við þjónustuþega.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur
Framhaldsnám á sviði geðhjúkrunar er kostur
Reynsla af leiðtogahlutverki/ stjórnun er kostur
Reynsla af málastjórn er kostur
Brennandi faglegur áhugi á að efla geðheilbrigðisþjónustu við þjónustuþega
Hæfni til að þróa og aðlaga geðheilbrigðisþjónustu að fjölbreyttum þörfum þjónustuþega
Faglegur metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að takast á við krefjandi verkefni
Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
Mjög góð færni í samskiptum og teymisvinnu
Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
Gilt ökuskírteini
Helstu verkefni og ábyrgð
Forysta í þverfaglegu geðteymi fangelsa
Náin samvinna við stjórnendur ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Geðheilbrigðisþjónusta í samræmi við gagnreynda þekkingu
Utanumhald og yfirsýn yfir starfsemi geðteymis fangelsa
Þátttaka í þróun þjónustu og gæða- og umbótastarfi
Samskipti við tengiliði hlutaðeigandi samstarfsstofnana og aðra haghafa
Málastjórn
Ábyrgð á þjálfun og kennslu nema
Sinnir tilfallandi verkefnum hjúkrunar innan ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis