Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Getur þú sungið hátt og snjallt og kennt tónmennt?

Getur þú sungið hátt og snjallt og spilað undir?
Viltu taka þátt í að móta tónmenntakennsluna hjá okkur

Tónmenntakennari óskast til starfa við Árbæjarskóla næsta skólaár, haustið 2025

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar gott foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tónmenntakennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur og fagteymi.
  • Þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
  • Taka þátt í uppsetningu söngleiks á unglingastigi og öðrum viðburðum.
  • Erum opin fyrir hugmyndum um kór, söngkennslu, þróunarverkefni o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Sérmenntun í tónmennt er æskileg.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt27. febrúar 2025
Umsóknarfrestur16. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar