
Félagsráðgjafi eða iðjuþjálfi óskast til starfa
Um er að ræða fjölbreytt starf félagsráðgjafa/iðjuþjálfa sem hluta af þverfaglegu teymi þar sem unnið er að sameiginlegum markmiðum og lausnum. Náið samráð er við annað fagfólk sem að endurhæfingu þátttakenda koma með það að markmiði að tryggja heildræna þjónustu. Um er að ræða 50-100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri.
Hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar sinnum við starfsendurhæfingu einstaklinga sem hafa af einhverjum ástæðum þurft að hverfa af vinnumarkaði í skemmri eða lengri tíma eða hafa ekki náð þar fótfestu. Þátttakendur eiga það sameiginlegt að vilja komast aftur til virkni á vinnumarkaði en þurfa heildstæða ráðgjöf og stuðning við að bæta stöðu sína. Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar er sjálfseignastofnun sem ekki er hagnaðardrifin og fjármögnuð af þjónustugjöldum.
- Annast faglega ráðgjöf og stuðning við þátttakendur og aðstandendur þeirra
- Mat og greining á þjónustuþörf í samráði við þátttakendur og þverfaglegt teymi
- Virk þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi og samskipti við önnur þjónustukerfi
- Gerð einstaklingsbundinna endurhæfingaráætlana með þátttakendum
- Halda utan um og bera ábyrgð á skráningum í einstaklingsmálum
- Umsjón með fræðslu og hópastarfi
- IPS ráðgjöf og stuðningur / samskipti við atvinnulífið
- Mikil samskipti og samvinna við hagsmunaaðila og sérfræðinga á sviði endurhæfingar
- Hefur frumkvæði og tekur þátt í að þróa úrræði innan starfsendurhæfingar
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur hverju sinni
- Háskólapróf ásamt starfsréttindum á Íslandi í félagsráðgjöf eða iðjuþjálfun
- Áhugi og þekking á starfsendurhæfingu
- Góð alhliða tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Fagleg og vönduð vinnubrögð
- Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð












