Samskip
Samskip
Samskip

Farmskráfulltrúi í Þjónustudeild

Við leitum að áhugasömum, jákvæðum og talnaglöggum einstakling í starf farmskrárfulltrúa í þjónustudeild Samskipa. Starfið felur í sér skráningu millilandasendinga í farmskrá félagsins, yfirferð á farmskrá og útgáfu reikninga.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirferð á farmskrá
  • Bókanir og umsjón og eftirlit með áframflutning útflutningssendinga
  • Umsjón og útgáfa gámaleigureikninga hjá Samskipum á Íslandi
  • Þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina
  • Samskipti við erlendar hafnir Samskipa

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun kostur
  • Góð excel kunnátta
  • Haldbær starfsreynsla, reynsla af störfum tengdum flutningum kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
  • Góð tölvukunnátta
  • Afburða samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreina sakaskrá. Umsóknarfrestur er til og með 11. mars n.k.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga María Garðarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar í netfangið [email protected]

Auglýsing birt25. febrúar 2025
Umsóknarfrestur11. mars 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kjalarvogur 7-15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar