Austurkór
Austurkór
Austurkór

Deildarstjóri með drifkraft & draumsýn

Okkur vantar deildarstjóra í flotta liðið okkar

Leikskólinn Austurkór leitar að hæfileikaríkum leikskólakennara til að stýra fallegri og velbúinni deild, byggja upp góða liðsheild starfsmanna og setja sitt mark á gróskumikið faglegt starf skólans.

Við í Austurkór horfum til Reggio Emilia og Vygotsky í starfsaðferðum okkar og leggjum mikla áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð og flæði. Við skiptum skólaárinu upp í lotur og vinnum markvisst með gildi skólans: lýðræði, atorka og samvinna. Við erum útigarpar sem eru opnir fyrir ævintýrum á aldursblönduðum deildum...enda eru einkunnarorð skólans "Austurkór - þar sem ævintýrin gerast".

Heimasíðan okkar er: https://austurkor.kopavogur.is/

Tvær deildarstjórastöður eru lausar til umsóknar- annars vegar deild með blönduðum aldri og hins vegar deild með yngstu börnin.

Ef þú telur að þú eigir erindi í Austurkórs-liðið endilega smelltu inn umsókn og ævintýrin bíða þín.

Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd starfsins á deildinni og mati á því.
Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
Skipuleggur og vinnur að einstaklingsmiðuðu uppeldi og menntun barnanna í samstarfi við samstarfsfólk.
Ber ábyrgð á og tekur þátt í skipulagi og verkefnum deildarinnar/skólans m.a. í þróunarverkefnum, foreldrasamstarfi, samstarfi við aðrar stofnannir, á starfsmannafundum o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennaramenntun
Reynsla af vinnu með börnum
Ábyrgð og hæfni í mannlegum samskiptum
Jákvæðni, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
Áhugi og vilji til að tileinka sér starfsaðferðir skólans
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Reynsla af deildarstjórnun æskileg
Auglýsing stofnuð7. maí 2021
Umsóknarfrestur22. maí 2021
Staðsetning
Austurkór 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar