Marbakki
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með tæplega 31 þúsund íbúa.
Nafn bæjarins er dregið af jörðinni Kópavogi sem ríkissjóður átti í byrjun síðustu aldar og leigði út ásamt annarri jörð Digranesi í nágrenni hennar. Kópavogshreppur var stofnaður í byrjun árs 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900. Hreppurinn óx hratt og voru íbúar orðnir 3.783 þegar Kópavogur hlaut kaupstaðarréttindi 11. maí árið 1955.
Í Kópavogi er mikil og fjölbreytt atvinnustarfsemi. Mest er um iðnað, þjónustu og verslun af ýmsu tagi og má geta þess að Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins.
Í bænum eru fjölbreytt tækifæri til útivistar og aðstaða til íþróttaiðkunar er með því besta sem þekkist. Þá eru Kópavogsbúar afar stoltir af menningarstofnunum sínum á Borgarholtinu, svo sem Salnum, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Tónlistarsafni Íslands og Molanum, ungmennahúsi Kópavogs.
Deildarstjóri
Leikskólinn Marbakki auglýsir eftir deildarstjóra í 100% stöðu.
Leikskólinn Marbakki er fimm deilda leikskóli með rými fyrir 99 börn. Leikskólinn tók til starfa árið 1986 og er staðsettur í Sæbólshverfi í Kópavogi. Unnið er í anda starfsaðferða Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn. Leitað er eftir kennara sem vill taka þátt í lærdómssamfélagi þar sem uppeldi og menntun nemendanna er miðdepill ákvarðanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildastjóra.
Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagi deildar og miðlun upplýsinga.
Er hluti af stjórnendateymi leikskólans og kemur að áætlanagerð og mati.
Sér um foreldrasamstarf á deildinni.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða annað kennarapróf.
Skapandi hugsun og metnaður í starfi.
Sjálfstæð vinnubrögð og samstarfshæfni.
Hæfileiki til að vera þátttakandi í lærdómssamfélagi í þróun.
Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Auglýsing stofnuð13. ágúst 2022
Umsóknarfrestur23. ágúst 2022
Staðsetning
Marbakkabraut 4, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Umsjónarkennari skólaárið 2024 - 2025
Hólabrekkuskóli
Störf á Leikskólanum Sjónarhóli
Sveitarfélagið Hornafjörður
Verkefnastjóri við Leikskólann Sjónarhól á Höfn
Sveitarfélagið Hornafjörður
Heimilisfræðikennari - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Kennari í textílmennt í Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli
Laus störf kennara á unglingastigi við Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli
Laus störf kennara á yngsta stigi við Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi
Landakotsskóli
Fagaðilar í stoðþjónustu Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli
Íslenskukennari og umsjónarkennari í Réttarholtsskóla
Réttarholtsskóli
Þroskaþjálfi óskast til starfa í Árbæjarskóla
Árbæjarskóli
Afleysingastofa Reykjavíkurborgar
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið