Bílstjóri í dreifingu hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Coca-Cola á Íslandi leitar að drífandi einstaklingi í starf bílstjóra.
Helstu verkefni
• Dreifa vörum fyrirtækisins til viðskiptavina
• Afhenda vörur eftir áætlunum
• Burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins
• Tryggja að bíllinn sé hlaðinn skv. kröfum um gæði og öryggi
• Tryggja að vörurnar séu afhentar skv. kröfum um gæði og öryggi
Hæfniskröfur
• Meirapróf C er skilyrði (CE er kostur)
• Reynsla af útkeyrslu
• Sjálfstæð vinnubrögð, sterk öryggisvitund og greinandi hugsun
• Góð töluð og rituð íslenskukunnátta er skilyrði
• Góð töluð enska er kostur
• Almenn tölvukunnátta
• Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
Öll sem hafa náð 21 árs aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2024.
Frekari upplýsingar veitir Bartosz Knasiak bknasiak@ccep.com.