Alfreð
Alfreð
Alfreð

Vörustjóri Giggó - Ertu til í taskið? 

Giggó er ungur en ört vaxandi vettvangur fyrir gigghagkerfið í öllum sínum fjölbreytileika. Við ætlum að skapa trausta en skilvirka umgjörð um giggin stór og smá svo gæðin vaxi og giggunum fjölgi. Sem systurvara Alfreðs ætlum við að þjóna notendum okkar af sömu kostgæfni og Alfreð hefur gert sl. 13 ár.

Nú ráðum við vörustjóra sem leitt getur Giggó til frekari umsvifa. Við leitum að liðsauka sem brennur fyrir stafrænum vörum, er sjálfstæður í hugsun og verkum, hugmyndaríkur, agaður og á gott með að vinna með fólki. Það er kostur að hafa þekkingu á SQL, hafa auga fyrir hönnun og nauðsynlegt að vera flinkur í notendaviðmóti.

Vörustjóri Giggó heyrir beint undir framkvæmdastjóra og stýrir þróunarteymi Giggó og starfar náið með öðrum stjórnendum fyrirtækisins og starfsfólki. Viðkomandi fær einstakt tækifæri til að byggja upp vöru sem er nýjung á markaðnum og vera hluti af alþjóðlegu fyrirtæki sem er í miklum vexti bæði innanlands og erlendis.

Alfreð er vinnustaður þar sem yfir þrjátíu manns vinna í fjórum löndum, auk þriggja annara landa sem sérleyfishafar starfrækja. Við erum með skrifstofu í Kópavogi og þar líður okkur vel saman auk dótturfélagsins Stokks, í að þróa stafrænar vörur, sem létta fólki lífið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Katrín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Alfreðs á [email protected].

Utworzono ofertę pracy9. June 2026
Termin nadsyłania podań24. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Akralind 8, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe