TILDRA Byggingafélag ehf.
TILDRA Byggingafélag ehf.

Verkstjóri á byggingarstað

Verkstjóri

Við hjá TILDRA Byggingafélagi leitum að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi til að taka þátt í verkefnunum okkar sem verkstjóri. Starfið felur í sér að hafa umsjón með daglegu skipulagi og framkvæmdum á verkstað, fylgjast með framvindu og tryggja að verkefni gangi eftir áætlun.

Við leggjum áherslu á gott samstarf og fagleg vinnubrögð og leitum að aðila sem hefur góða yfirsýn, getur tekið frumkvæði og hefur reynslu af framkvæmdum eða stjórnun byggingarverkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni:

  • Umsjón með daglegum framkvæmdum á verkstað

  • Skipulagning og eftirfylgni á verkáætlunum

  • Samstarf við hönnuði, verktaka, birgja og aðra hagsmunaaðila

  • Eftirlit með öryggismálum og gæðakröfum á vinnusvæði

  • Skil á verkum innan tímamarka og kostnaðarviðmiða

  • Tímaskráning, skýrslugerð og samskipti við stjórnendur

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur:

  • Menntun í byggingartækni, verkfræði eða sambærilegt (kostur)

  • Reynsla af framkvæmdum og/eða verkstjórn á byggingarsvæðum (kostur)

  • Þekking á verkáætlun, kostnaðareftirliti og gæðakerfum

  • Góð samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Færni í notkun verkstjórnarkerfa og tölvuforrita (t.d. Excel, AutoCAD, MS Project o.fl.)

Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

  • Krefjandi og fjölbreytt verkefni hjá framsæknu fyrirtæki

  • Tækifæri til vaxtar og þróunar í starfi

  • Samkeppnishæf laun og starfskjör

Utworzono ofertę pracy5. June 2026
Termin nadsyłania podań17. July 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe