
Orkuveitan
Orkuveitan styður vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu.
Hjá Orkuveitunni leggjum við áherslu á að vinna með fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem býr yfir eða hefur vilja til að byggja upp þá hæfni sem hentar verkefnum hverju sinni. Við tökum forystu í verkefnum og hjá okkur ríkir jákvæður starfsandi.
Við tryggjum góðan aðbúnað, sveigjanleika og sköpum starfsfólki aðstæður til að samræma kröfur vinnu og annarra þátta lífsins. Við nýtum okkur tækni í starfsumhverfi og starfsfólk nýtur jafnréttis.
Saman erum við lipur, lærdómsfús og óhrædd að prófa nýja hluti til að skapa eftirtektarverðar lausnir og ná hámarks árangri fyrir viðskiptavini og samfélagið.

Verkefnastjóri í hugbúnaðarþróun
Vilt þú skapa skipulag og árangur í flóknum tækniverkefnum?
Hugvit og tækni hjá Orkuveitunni leitar að reynslumiklum verkefnastjóra í hugbúnaðarþróun sem hefur brennandi áhuga á því að skapa skipulag og árangur í flóknum tækniverkefnum. Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að vinna í teymi, tengja saman fólk og tækni og láta hlutina gerast.
Þú munt leiða innleiðingu á Microsoft Finance & Operations (nýtt fjárhagskerfi Orkuveitunnar) sem styður við innviði Orkuveitunnar og dótturfélaga. Þú vinnur náið með forriturum, hönnuðum og hagsmunaaðilum og tryggir að verkefni séu unnin markvisst, af fagmennsku og með skýra sýn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja, stjórna og fylgja eftir verkefnum frá hugmynd til afhendingar.
- Greina þarfir, setja fram markmið og fylgja eftir tímaáætlunum, kostnaði og gæðum.
- Tryggja skilvirka samvinnu milli teyma og hagsmunaaðila.
- Stýra upplýsingaflæði, halda utan um framvindu og skila reglubundnum stöðuskýrslum.
- Bregðast við áskorunum og áhættum í verkefnum á skipulegan hátt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Samskiptahæfni númer eitt tvö og þrjú þar sem verkefnið er drifið áfram af góðum samskiptum við alla hagsmunaaðila.
- Þú hefur hæfileika til að byggja upp traust og hvetja teymi til árangurs.
- Þú ert lausnamiðuð og skipulögð manneskja með góða hæfni til að forgangsraða og fylgja hlutum eftir.
- Reynsla sem jafngildir IPMA-B vottun.
- Þú hefur reynslu af verkefnastjórnun í hugbúnaðarverkefnum, t.d. sem verkefnastjóri, teymisstjóri eða scrum master.
- Kostur er að þú þekkir ferli hugbúnaðargerðar.
- Kostur ef þú hefur unnið með verkfæri á borð við Jira, Asana eða sambærileg kerfi.
Utworzono ofertę pracy1. November 2025
Termin nadsyłania podań16. November 2025
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
Zdolności kierowniczeAmbicjaSumiennośćPraca zespołowaZarządzanie projektemZarządzanie projektami IT
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (11)

Hópstjóri á verkstæði
Hekla

Gæðafulltrúi
Hornsteinn ehf

Art Producer
CCP Games

Project Manager
Wisefish ehf.

Verkefnastjóri hjá Símenntun á Vesturlandi
Símenntun á Vesturlandi

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

VERKEFNASTJÓRI REKSTURS
atNorth

Verkefnastjóri framkvæmda
Vinnvinn

marvaða leitar að tæknilegum verkefnastjóra
marvaða ehf.

Deildarstjóri skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar
Sveitarfélagið Hornafjörður

Deildarstjóri þjónustu- og framkvæmdadeildar
Sveitarfélagið Hornafjörður