
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum
Eimskip leitar að metnaðarfullum og öflugum svæðisstjóra til starfa á Vestfjörðum.
Hjá Eimskip á Vestfjörðum starfar samhentur hópur sem sinnir fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum á sviði innanlandsflutninga, auk þjónustu tengdri inn- og útflutningi fyrir viðskiptavini á svæðinu.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem svæðisstjóri leiðir daglegan rekstur tveggja starfsstöðva, á Ísafirði og Patreksfirði, en starfsstöð svæðisstjóra er á Ísafirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri
- Þjónusta við viðskiptavini
- Umsjón með starfsmannamálum
- Áætlanagerð og markmiðasetning
- Stuðningur við áframhaldandi þróun og vöxt starfseminnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða víðtæk starfsreynsla
- Reynsla af stjórnun og rekstri
- Reynsla af sölu og samningagerð
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Framúrskarandi þjónustulund
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í störfum
Fríðindi í starfi
- Farsímaáskrift og nettenging heima
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Öflugt starfsmannafélag og aðgangur að orlofshúsum víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur m.a. samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
Utworzono ofertę pracy9. June 2026
Termin nadsyłania podań21. June 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Sundahöfn , 400 Ísafjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
PlanowanieInicjatywaAmbicjaNegocjacjeSamodzielność w pracyOrganizacjaSprzedaż
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (3)
Podobne oferty pracy (12)

Stjórnandi í framkvæmdum
Ístak hf

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Akstursstjóri gámaaksturs - Höfuðborgarsvæðið
Eimskip

Talent Acquisition Specialist
Fenris Creations

Verkstæðisstjóri
Dekkjahöllin ehf

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps
Súðavíkurhreppur

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Suðurnesjabær

Bókari
Eignaumsjón hf

Forstöðumaður reksturs og þjónustu - Bakkinn Vöruhótel
Bakkinn vöruhótel

Starfsmaður á bókasafni Menntaskóla í tónlist
MÍT menntaskóli í tónlist

Bæjarstjóri
Grindavíkurbær

Forstöðumaður frístundar í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli