Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf á heimili fatlaðs fólks

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri, til starfa á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem skal tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins.

Við leitum að fólki í sumarstörf í 70- 80% hlutfall í vaktavinnu á tímabilinu frá 1.júlí til ágústloka.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Persónulegur stuðningur og aðstoð við athafnir daglegs lífs, jafnt innan sem utan heimilis. 
  • Vera góð fyrirmynd. 
  • Stuðla að sjálfstæði íbúa. 
  • Almennt heimilishald. 
  • Samvinna við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa. 
  • Fjölbreytt verkefni. 
  • Geta til að starfa undir álagi þar sem starfið getur verið líkamlega og andlega krefjandi. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur.
  • Tveggja ára nám á framhalsskólastigi og eða reynsla sem nýtist í starfi er æskilegt.  
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi. 
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg. 
  • Framtakssemi, frumkvæði, stundvísi og jákvætt viðhorf í starfi. 
  • Starfað er í anda þeirra meginhugmynda er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks. 
  • Bílpróf er kostur. 
Utworzono ofertę pracy3. June 2026
Termin nadsyłania podań10. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Marbakkabraut 14, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe