

Starfsmaður á renniverkstæði KAPP Skaginn Akranesi
Starf starfsmanns á renniverkstæði KAPP á Akranesi snýr að því að tryggja örugga, faglega og skilvirka framleiðslu á vélhlutum og íhlutum samkvæmt teikningum, gæðakröfum og framleiðsluáætlun félagsins.
Kjarni starfsins snýr að framleiðslu vélhluta samkvæmt teikningum og forskriftum með notkun Haas CNC rennibekkja og fræsivéla.
Helstu verkefni starfsins eru
-
Uppsetning og keyrsla á Haas CNC rennibekkjum
-
Lesa og túlka framleiðsluteikningar
-
Verkfærauppsetningar, stillingar, mælingar og gæðaeftirlit
-
Daglegt viðhald og eftirlit með vélbúnaði
-
Starfsmaður tryggir að öryggisreglur og verklag séu ávallt virt
-
Starfsmaður veitir tæknilega ráðgjöf innan fyrirtækisins og styður við þróunarverkefni
Starfsmaður ber ábyrgð á eftirfarandi þáttum
-
Öruggri og faglegri notkun Haas CNC rennibekkja og annars framleiðslubúnaðar félagsins
-
Að framleiddir íhlutir uppfylli teikningar, forskriftir og gæðakröfur félagsins
-
Uppsetningu, stillingum, mælingum og vali verkfæra fyrir framleiðsluverkefni
-
Tilkynna frávik í framleiðslu, teikningum eða efnisgæðum án tafar
-
Góðri nýtingu hráefnis, verkfæra og framleiðslutíma
-
Daglegu eftirliti með ástandi véla og að tilkynna viðhaldsþörf
-
Að viðhalda snyrtilegu og öruggu vinnuumhverfi samkvæmt reglum félagsins
-
Stuðla að stöðugum umbótum í framleiðsluferlum, uppsetningum og vinnubrögðum
-
Stuðla að því að framleiðsluáætlanir standist og að afhendingar verkefna fari fram á réttum tíma
-
Að öryggis-, gæða- og umhverfisreglum félagsins sé fylgt í hvívetna
-
Búa til, breyta og viðhalda CNC forritum fyrir Haas rennibekki
-
Tryggja að CNC forrit séu skjalfest, vistuð og aðgengileg samkvæmt verklagi félagsins
-
Hámarka vinnsluferla með tilliti til afkasta, gæðakrafna og nýtingar véla
-
Leiðbeina og þjálfa nýja starfsmenn í notkun CNC véla og framleiðsluferlum
-
Taka þátt í mati á nýjum verkfærum, búnaði og framleiðsluaðferðum
-
Veita tæknilega ráðgjöf innan framleiðslusviðs eftir þörfum
-
Sveinspróf í rennismíði, vélvirkjun eða sambærileg menntun
-
Reynsla og þekking á uppstillingum og forritun rennibekkja CAM
- Þekking á Autodesk forritum, Inventor og Fusion
-
Góð þekking á Haas stjórnbúnaði er kostur
-
Þekking á lestri framleiðslu- og vélateikninga
-
Reynsla af mælitækjum og gæðaeftirliti
-
Þekking á málmvinnslu og vinnsluferlum
-
Góð tölvukunnátta
-
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
-
Frumkvæði og ábyrgðartilfinning
-
Góð samskiptahæfni og hæfni til teymisvinnu
-
Færni í íslensku eða ensku
islandzki
Angielski










