Landspítali
Landspítali
Landspítali

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma - afleysing

Legudeild geðrofssjúkdóma leitar eftir jákvæðu og metnaðarfullu samstarfsfólki í tímabundin störf vegna afleysinga í fæðingarorlofi. Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í vaktavinnu. Ráðningartími er 4-8 mánuðir og er upphafstími ráðningar í ágúst 2026.

Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 rými ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu, lyfjameðferð og áhersla er lögð á öfluga fjölskylduvinnu. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm.

Starfið felur í sér að veita líkamlega og andlega umönnun og hjúkrun, hvatningu við athafnir daglegs lífs, ferðir í ýmsa virkni og að tryggja öryggi sjúklinga og starfsmanna á deild með þátttöku í varnarteymi geðþjónustu. Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfsmannahópnum þar sem leitast er við að nýta þekkingu og færni hvers starfsmanns í deildarstarfið.

Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.

Wymagane wykształcenie i kwalifikacje
Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf
Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala er kostur
Reynsla af stuðningi við fólk með geðrænan vanda er kostur
Reynsla af vinnu við líkamlega umönnun er kostur
Reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu starfi er kostur
Faglegur metnaður og mjög góð samskiptahæfni
Stundvísi og áreiðanleiki
Íslenskukunnátta áskilin
Główne zadania i obowiązki
Sinnir líkamlegri og andlegri umönnun og stuðningi við sjúklinga undir leiðsögn hjúkrunarfræðings
Er tengiliður sjúklings, styður við daglega virkni og framfylgir meðferðaráætlunum
Sinnir stuðningi við aðstandendur
Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með virkri þátttöku í varnarteymi geðsviðs
Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildarinnar
Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
Virk þátttaka í framþróun og umbótastarfi deildar
Stuðlar að góðum starfsanda
Utworzono ofertę pracy27. May 2026
Termin nadsyłania podań15. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (35)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Læknisfræðilegur eðlisfræðingur á geislameðferðardeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar í blóðtökuþjónustu
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á geðgjörgæslu 32C
Landspítali
Landspítali
Starf ritara í áfallateymi, geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í endurhæfingarlækningum
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Viltu starfa við svefnrannsóknir og meðferð svefnsjúkdóma?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í bæklunarlækningum
Landspítali
Landspítali
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá haustönn 2026
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður á skurðstofum við Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Félagsráðgjafi í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur- Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraþjálfari - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á öldrunardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali