
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Oddeyrarskóli á Akureyri: Húsvörður
Laus er til umsóknar 100% staða húsvarðar í Oddeyrarskóla. Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Í Oddeyrarskóla vinnum við saman að því að skapa skólasamfélag sem nær árangri. Það einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Oddeyrarskóli er heilsueflandi grunnskóli. Unnið er eftir hugmyndafræði SMT og eru einkunnarorð skólans ábyrgð, virðing og vinátta. Oddeyrarskóli er við Víðivelli á Akureyri og er fjöldi nemenda um 165.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is
Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og viðhald á húseign og lóð skólans, tækjum og innanstokksmunum og er tengiliður við Umhverfis- og mannvirkjasvið þar að lútandi.
- Er verkstjóri og næsti yfirmaður skólaliða skv. skipuriti og ber því ábyrgð á skipulagningu ræstinga innan skólans og einnig að vera í samskiptum við þrifafyrirtækið sem sér um ræstingu á skólanum.
- Tekur þátt í skipulagningu gæslu nemenda, hefur umsjón með sorpflokkun, snjómokstri, hálkueyðingu o.fl.
- Umsjón með búnaði skólans.
- Umsjón með útleigu á húseigninni.
- Húsvörður sinnir einnig öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri kann að fela honum, enda samrýmist þau starfssviði hans, s.s. tilfallandi eftirlit utan hefðbundins vinnutíma.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur reynslu af minniháttar viðhaldi húsa og lóða.
- Hefur áhuga á að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við börn og fullorðna.
- Hefur þokkalega þekkingu á tæknibúnaði og tölvukerfum.
- Góð samskiptafærni og og þjónustulund.
- Hefur reynslu af verkstjórn.
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og snyrtimennska.
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Utworzono ofertę pracy8. June 2026
Termin nadsyłania podań22. June 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Víðivellir/Oddeyrarsk 149749, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
Ogólne umiejętności obsługi komputeraInicjatywaSumiennośćSamodzielność w pracyOrganizacjaNastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (8)

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Sálfræðingur í skólaþjónustu
Akureyri

Glerárskóli: Atferlisfræðingur, þroskaþjálfi eða einstaklingur með háskólamenntun sem nýtist
Akureyri

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs: Verkefnastjóri fjármála og rekstrar
Akureyri

Oddeyrarskóli: Náms- og starfsráðgjafi
Akureyri

Oddeyrarskóli: Kennari í ÍSAT
Akureyri

Leikskólinn Tröllaborgir: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Leikskólinn Klappir: Leikskólakennari eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Akureyri

Glerárskóli: Sérkennari
Akureyri



