Hveragerðisbær
Hveragerðisbær
Hveragerðisbær

Hveragerðisbær leitar að ráðgjafaþroskaþjálfa til að starfa á velferðarsviði

Hveragerðisbæjar óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi ráðgjafaþroskaþjálfa til starfa á velferðarsviði

Ráðgjafaþroskaþjálfi starfar innan velferðarsviðs með áherslu á ráðgjöf, stuðning og málastjórn í málefnum fatlaðs fólks. Starfið nær bæði til fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og til fatlaðs fullorðins fólks samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Starfið felur í sér náið samstarf við notendur þjónustunnar, aðstandendur og samstarfsaðila innan og utan sveitarfélagsins.

Næsti yfirmaður ráðgjafaþroskaþjálfa er sviðsstjóri velferðarsviðs.

Starfshlutfall er 90% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf, stuðningur og eftirfylgni við þjónustuþega í málaflokknum.  
  • Málastjórn og þátttaka í samþættingu þjónustu samkvæmt lögum um farsæld barna.  
  • Mat á þjónustuþörfum og þátttaka í gerð einstaklingsbundinna þjónustu- og stuðningsáætlana.  
  • Umsjón og eftirfylgni með þjónustu samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Ásamt annarri stjórnsýslulegri skjalavinnslu. 
  • Samvinna og samhæfing við skóla, heilbrigðisþjónustu, stofnanir, þjónustuveitendur og aðra samstarfsaðila.  
  • Þátttaka í þróun og eflingu þjónustu við fatlað fólk innan sveitarfélagsins.  
  • Stuðla að því að notendur njóti á hverjum tíma þeirrar þjónustu sem best mætir þörfum þeirra og eykur þátttöku þeirra í samfélaginu.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  •  Háskólamenntun í þroskaþjálfafræðum og gilt starfsleyfi sem þroskaþjálfi er skilyrði.  
  • Reynsla af vinnu með fötluðum börnum, fjölskyldum og/eða fötluðu fullorðnu fólki er kostur.  
  • Þekking og reynsla af störfum innan félagsþjónustu sveitarfélaga er æskileg.  
  • Þekking á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er æskileg.  
  • Þekking og reynsla af notkun OneCRM eða sambærilegra málaskráningarkerfa er kostur.  
  • Færni til að greina og túlka flóknar upplýsingar og vinna þjónustu- og stuðningsáætlanir.  
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni. 
  • Geta til þess að vinna undir álagi. 
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði. 
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur 
  • Þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu og vinnslu stjórnsýslumála er kostur. 
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti, að lágmarki C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum er skilyrði 
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð samkvæmt lögum og reglum.  
Utworzono ofertę pracy9. June 2026
Termin nadsyłania podań30. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Breiðamörk 20, 810 Hveragerði
Fljótsmörk 2, 810 Hveragerði
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Terapeuta rozwojowy
Zawody
Tagi zawodowe