Aflið
Aflið

Framkvæmdastýra Aflsins

Aflið leitar að öflugri og skipulagðri framkvæmdastýru til að leiða daglegan rekstur samtakanna og vinna að áframhaldandi þróun og eflingu starfseminnar.

Aflið eru samtök fyrir þolendur ofbeldis sem veita sérhæfðan stuðning, ráðgjöf og fræðslu. Starfsemi samtakanna byggir á fagmennsku og þolenda- og áfallamiðaðri nálgun.

Um er að ræða fjölbreytt og áhrifamikið starf þar sem viðkomandi leiðir þróun mikilvægrar þjónustu fyrir þolendur ofbeldis. Leitað er að einstaklingi með frumkvæði, leiðtogahæfni og áhuga á samfélagsmálum.

Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Æskilegt er er viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst.

Frekari upplýsingar veitir Erla Hrönn, framkvæmdastýra Aflsins á [email protected] eða í síma 8487022.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun starfseminnar.
  • Framkvæmd stefnu stjórnar og þróun þjónustu samtakanna.
  • Mannauðsstjórnun og stuðningur við starfsfólk.
  • Umsjón með fjármálum, fjármögnun, styrkumsóknum og verkefnastjórnun.
  • Samskipti við samstarfsaðila og kynning á starfi samtakanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af stjórnun, rekstri eða verkefnastjórnun er æskileg.
  • Góð þekking á fjármálum og rekstri.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Reynsla af styrkjaumsóknum og fjármögnun er kostur.
Utworzono ofertę pracy8. June 2026
Termin nadsyłania podań30. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Aðalstræti 14, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Tagi zawodowe