

Félagsráðgjafi
Hringsjá endurhæfing óskar eftir félagsráðgjafa til starfa. Leitað er að jákvæðum og skipulögðum félagsráðgjafa í 80 -100% starf eða eftir samkomulagi.
Starfið er fjölbreytt, krefst faglegra vinnubragða, sjálfstæðis í starfi og það væri kostur að viðkomandi þekki til IPS ráðgjafar. Viðkomandi mun taka þátt í mótun nýrra verkefna hjá Hringsjá ásamt því að vinna í þverfaglegu samstarfi á starfsendurhæfingarstöðinni.
Viðkomandi mun starfa í Víðsjá sem er úrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 30 ára. Markhópurinn er NEET – ungmenni (Not in Education, Employment or Training) sem hafa verið vanvirk, eru með skerta færni til samfélagsþátttöku og/eða andlegar hindranir/geðraskanir/taugaþroskaraskanir sem hamla einstaklingi til vinnu eða náms.
Félagsleg ráðgjöf og umsjón með endurhæfingaráætlunum þátttakenda í Víðsjá.
Teymisvinna með sérfræðingum Hringsjár.
IPS ráðgjöf og stuðningur.
Samskipti við þjónustukaupa þ.e. VIRK starfsendurhæfingarsjóð.
Íslenskt starfsleyfi sem félagsráðgjafi.
Reynsla sem nýtist í starfi.
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
Hæfni til að þróa og aðlaga þjónustu að fjölbreyttum þörfum þátttakenda.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Góð almenn tölvukunnátta.
Hreint sakavottorð.
Starfsemi fylgir að hluta skóladagatali hjá grunnskólum Reykjavíkur þ.e. páskafrí, jólaleyfi og vetrarleyfi á sama tíma. Vinnuvika fólks í fullri vinnu er 36 stundir.
Angielski
islandzki




