Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Deildarforseti viðskiptadeildar

Háskólinn á Bifröst auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarforseta viðskiptadeildar.

Deildarforseti leiðir akademískt starf og stefnumótun deildarinnar, hefur umsjón með námi innan hennar og situr í framkvæmdastjórn háskólans.

Innan Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst er fjölbreytt námsframboð bæði á grunn- og meistarastigi og má þar nefna viðskiptafræði, markaðsfræði, fjármálastjórnun, mannauðsstjórnun, verkefnastjórnun o.fl.

Við leitum að einstaklingi með faglegan styrk, forystu í rannsóknum, reynslu af skólamálum á háskólastigi og metnað og áhuga á að taka virkan þátt í starfsemi og uppbyggingu öflugs og framsækins háskólastarfs.

Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar og hefur verið leiðandi í uppbyggingu fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 25 ár.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun, skipulag og ábyrgð á faglegum störfum á sviði kennslu og rannsókna og inntöku nemenda.
  • Leiðir innra starf og þróunarstarf deildar og ber ábyrgð á starfsmannamálum innan deildarinnar.
  • Fjárhagsleg ábyrgð innan ramma fjárhagsáætlunar deildar.
  • Ábyrgð á og umsjón með gæðastarfi deildar.
  • Samstarf við stoðsvið.
  • Samskipti við nemendur um akademísk málefni.
  • Tekur þátt í nefndarstarfi innan og utan háskólans eftir atvikum.
  • Kemur að kennslu og rannsóknum samkvæmt samkomulagi við rektor.
  • Hefur eftirlit með rannsóknarvirkni í deildinni í samstarfi með rannsóknarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Doktorspróf tengt fræðasviðum deildarinnar.
  • Þekking og reynsla af stjórnun og/eða kennslu á háskólastigi er nauðsynleg.
  • Þekking og reynsla úr atvinnulífinu er kostur.
  • Haldgóð leiðtoga- og stjórnunarreynsla.
  • Skipulags, samskipta- og samráðsfærni.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Utworzono ofertę pracy5. June 2026
Termin nadsyłania podań21. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Zdolności kierownicze
Zawody
Tagi zawodowe