
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Akstursstjóri gámaaksturs - Höfuðborgarsvæðið
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum akstursstjóra til að stýra daglegum gámaakstri á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða krefjandi og mikilvægt hlutverk þar sem tryggja þarf skilvirkan akstur, góða nýtingu bílaflota og áreiðanlega þjónustu við viðskiptavini.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag og stýring á daglegum gámaakstri
- Verkefnaúthlutun til bílstjóra og eftirfylgni á akstri
- Tryggja hámarks nýtingu bíla og eftirvagna
- Eftirlit með þjónustustigi og tímanlegri afhendingu
- Dagleg samskipti við bílstjóra, viðskiptavini og starfsfólk á höfninni
- Lausnamiðuð úrlausn ófyrirséðra verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af akstursstjórnun eða flutningastarfsemi er kostur
- C/CE réttindi eru kostur
- Sterk skipulags- og samskiptahæfni
- Hæfni til að taka ákvarðanir undir álagi
- Reynsla af verkstjórn eða teymisstjórnun er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi þar sem áhersla er á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks
- Öflugt starfsmannafélag og aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakka sem m.a. inniheldur samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
- Aðgang að góðu mötuneyti með niðurgreiddum mat
Utworzono ofertę pracy5. June 2026
Termin nadsyłania podań19. June 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaSamodzielność w pracyOrganizacjapraca pod presjąNastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (2)
Podobne oferty pracy (12)

Verkstjóri á þjónustustöð, Patreksfjörður
Vegagerðin

Bílstjóri óskast (meirapróf nauðsynlegt)
Fiska.is Asian supermarket

Aðstoðarverkstjóri
BL ehf.

Stjórnandi í framkvæmdum
Ístak hf

Steypubílstjóri á Selfossi - Tímabundið
Steypustöðin

Aðstoðarverkstjóri í tiltekt
Parlogis

Kranabílstjóri á nýjan kranabíl
Ísbor ehf

Verkstæðisstjóri
Dekkjahöllin ehf

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps
Súðavíkurhreppur

Verkstjóri á byggingarstað
TILDRA Byggingafélag ehf.

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Suðurnesjabær

Bæjarstjóri
Grindavíkurbær