Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Aðstoðarforstöðumaður í frístund Lindaskóla

Laus er til umsóknar staða aðstoðarforstöðumanns frístundar við Lindaskóla, Kópavogi.

Lindaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling í starf aðstoðarforstöðumanns frístundaheimilisins Demantabæjar sem er staðsett inni í skólanum. Frístundin er ætluð börnum í 1. - 4. bekk.

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli með um 470 nemendur í 1. - 10. bekk og um 160 börn eru í frístundinni hvert ár. Góður starfsandi ríkir bæði í skóla og frístund og hefur mikil og góð samvinna verið milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Gildi skólans eru vinátta, virðing og viska.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn og skipulagningu starfs í samráði við forstöðumann frístundaheimilis og tryggir skilvirka verkaskiptingu meðal starfsfólks.

• Veitir starfsfólki faglega leiðsögn, stuðning og ráðgjöf í daglegum störfum.

• Stuðlar að jákvæðum samskiptum, góðum starfsanda og lýðræðislegum starfsháttum meðal starfsfólks og barna.

• Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd frístundastarfs í samstarfi við forstöðumann, starfsfólk og börn.

• Tryggir að starfsemi og viðfangsefni frístundaheimilisins séu fjölbreytt, skapandi, aldursmiðuð og stuðli að þroska og vellíðan barna.

• Aðstoðar við undirbúning og stjórnun starfsmannafunda og eftirfylgni með ákvörðunum þeirra.

• Tekur virkan þátt í starfi með börnum og starfsfólki og er fyrirmynd í faglegum vinnubrögðum og samskiptum.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Háskólamenntun á sviði uppeldis- og menntunarfræða, tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi æskileg.

• Reynsla af verkstjórn eða leiðtogahlutverki er kostur.

• Reynsla af starfi með börnum og/eða ungmennum.

• Reynsla af skipulagningu og framkvæmd félags- og tómstundastarfs.

• Reynsla af samstarfi við grunnskóla, leikskóla eða aðrar menntastofnanir er kostur.

• Hæfni til að leiða teymisvinnu og styðja við starfsþróun starfsfólks.

• Þekking á stefnum og aðalnámskrá frístundaheimila er kostur.

• Góðir skipulagshæfileikar og hæfni til að forgangsraða verkefnum.

• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og sterk fagleg sýn.

• Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun í starfi.

• Áhugi á velferð, þroska og þátttöku barna í fjölbreyttu frístundastarfi.

• Fjölbreytt reynsla, þekking eða áhugamál sem auðgað geta starfsemi frístundaheimilisins.

• Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að nýta stafræn verkfæri í starfi.

Frekari upplýsingar

Upplýsingar um starfið gefa Margrét Ármann skólastjóri Lindaskóla, [email protected] og Kristín Lillý Kjærnested forstöðumaður frístundar Lindaskóla, [email protected].

Utworzono ofertę pracy7. June 2026
Termin nadsyłania podań22. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe