

Grettis saga Ásmundarsonar
ATH - Tvær tímasetningar í boði:
Þriðjudagskvöld, 27. janúar - 17. mars, kl. 19:30 - 21:30
Miðvikudagskvöld, 28. janúar - 18. mars, kl. 10:00 - 12:00
Grettir Ásmundarson hefur löngum verið Íslendingum hugleikinn. Hann á stóran sess í þjóðtrúnni og mörg merkustu skáld þjóðarinnar hafa leitast við að skilja eðli þessa útlæga ógæfumanns og skírskotun hans til þjóðarsálarinnar. Fyrir Matthíasi Jochumssyni var Grettir táknmynd Íslendinga eins og segir í Grettisljóðum: „Þú ert Grettir, þjóð mín“.
Gleggstu myndina, og jafnframt þá margræðustu, fáum við í Grettis sögu sem er ein lengsta og merkasta saga sem samin var hérlendis á miðöldum. Sagan hefur verið talin frá byrjun 14. aldar en gæti verið allt að því heilli öld yngri, því elstu handrit hennar eru frá því í byrjun 15. aldar. Hvort heldur sem er, þá er hún í hópi yngstu Íslendingasagna. Hún er því í senn afurð sígildrar sagnaritunar 13. aldar, afkvæmi verka eins og Egils sögu og Brennu-Njáls sögu, en um leið vísar hún veginn inn í annars konar bókmenntir, þar sem hið yfirnáttúrulega skipar stærri sess og gegnir öðru hlutverki en í fyrri sögum.