Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri

Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti

Námskeiðið er framhaldsnámskeið fyrir þau sem hafa lokið Grunnnámskeiði Listmeðferðar.

Á námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir grunnstoðir listmeðferðar. Fjallað verður um meginkenningar og aðferðir listmeðferðar í sögulegu samhengi. Með blöndu af listrænni sköpun, fyrirlestrum, umræðum, lestri og verkefnavinnu öðlast nemendur skilning og þekkingu á listmeðferðinni. Nemendur taka þátt í vinnustofum þar sem þeir upplifa sköpunarferlið og þann möguleika sem það gefur.

Námskeiðið verður í þremur staðlotum við Háskólan á Akureyri. Fjarkennsla verður á milli lota í alls fjögur skipti í 3 klst í senn. 

Hefst
6. nóv. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Verð
249.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar