Sunddeild Ármanns
Sunddeild Ármanns
Sunddeild Ármanns

Viltu þjálfa börn í sundi?

Sunddeild Ármanns er leiðandi og metnaðarfullt sundfélag sem óskar eftir umsóknum frá áhugasömum sundþjálfurum og/eða aðstoðarþjálfurum sem vilja vinna í öflugu þjálfarateymi félagsins. Ef þú hefur áhuga á sundþjálfun og vilt skemmtilega vinnu með börnum og góðu þjálfarateymi, viljum við heyra frá þér.

Ármann er með sundskóla og æfingahópa í Laugardalslaug, Árbæjarlaug og Grafarvogslaug fyrir börn frá 3 ára aldri.

Við erum sérstaklega að leita að þjálfurum fyrir 9-13 ára æfingahóp í Laugardalslaug og fyrir fleiri sundskóla og yngri æfingahópa í Grafarvogslaug. Einnig erum við að skoða möguleika á að bæta við sundskóla og yngri æfingahópa í Dalslaug.

Starf:

  • Sundþjálfun eða aðstoðar sundþjálfun barna.

  • Hluti af þjálfarateymi Sunddeildar undir leiðsögn yfirþjálfara.

  • Vinnutími seinnipart dags á virkum dögum 2-4 daga vikunnar. Eldri æfingahópar taka einnig þátt í einstaka sundmótum sem eru um helgar.

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni og íslenskukunnátta.

  • Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og með hreint sakavottorð.

  • Reynslu af þjálfun barna er kostur. Ef þú hefur þjálfað sund áður þá viljum við gjarnan heyra nánar um það.

Umsókn sendist á [email protected] með upplýsingum um menntun og fyrri störf.

Advertisement published11. November 2025
Application deadline7. December 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Engjavegur 7, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags