Vistor
Vistor

Sviðsstjóri viðskiptaþróunar og greiningar

Ert þú kraftmikill leiðtogi með góða innsýn og brennandi áhuga á viðskiptaþróun og greiningum og vilt starfa hjá leiðandi fyrirtæki á sínu sviði?

Við leitum að metnaðarfullum og framsýnum stjórnanda til að leiða ört stækkandi svið innan Vistor. Starfsemin felur í sér rekstrargreiningar, öflun nýrra viðskiptasambanda, stafræna markaðssetningu og greiningar tengdar heilsuhagfræði. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling með sterka leiðtogahæfileika, hæfni til að byggja upp jákvæða vinnustaðamenningu og skarpa sýn á tæknivæðingu og stafrænar framfarir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða teymi sérfræðinga og stuðningur við starfsfólk
  • Ábyrgð á sölu- og rekstrargreiningum og áætlanagerð
  • Greina tækifæri, vinna að öflun nýrra viðskiptasambanda og samninga við erlenda birgja
  • Leiða uppbyggingu á frekari nýtingu stafrænna miðla í markaðs- og sölustarfi ásamt heilsuhagfræðilegum greiningum
  • Innleiða tækninýjungar og framfaraverkefni, þar á meðal nýtingu gervigreindar og annarra lausna til að bæta vinnulag og ákvarðanatöku
  • Seta í stjórnendateymi Vistor og þátttaka í stefnumótandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði viðskipta, verkfræði, raunvísinda eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni til að leiða teymi til árangurs
  • Tæknileg þekking og hæfni til að innleiða nýjungar og nýta stafrænar lausnir
  • Hugmyndaauðgi og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Frumkvæði, drifkraftur og skipulagshæfni
  • Hæfni til að tileinka sér og innleiða tækninýjungar
  • Þekking á lyfjamarkaði og íslenska heilbrigðiskerfinu er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Þekking á Norðurlandatungumáli er kostur
Fríðindi í starfi
  • Hollur og góður morgun- og hádegisverður
  • Aðgangur að sund- og líkamsræktarstöð
  • Niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
Advertisement published8. November 2025
Application deadline16. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Business relations
Professions
Job Tags