
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Sérfræðingur á sviði virðisaukaskatts hjá Skattinum
Skatturinn leitar að áhugasömum sérfræðingi til að starfa með öflugum hópi starfsfólks á álagningarsviði í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Meginhlutverk álagningarsviðs er að leggja skatta og gjöld á einstaklinga og lögaðila og sinna þeim verkefnum sem því tengjast, þ.m.t. undirbúningi, þjónustu, eftirliti og afgreiðslu erinda og kæra. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um fjölbreytt verkefni er að ræða á sviði virðisaukaskatts, m.a. úrlausn flókinna álitaefna, ritun umsagna, samskipti við aðila innan stjórnsýslunnar og aðra hagsmunaaðila, gerð leiðbeininga og úrvinnsla ýmissa gagna sem tengjast starfsemi Skattsins. Um fullt starf er að ræða.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði lögfræði, viðskiptafræði eða hagfræði (lágmarksmenntun er bakkalárgráða, meistaragráða er æskileg)
- Þekking á lögum, reglugerðum og framkvæmd er varðar virðisaukaskatt
- Þekking á bókhaldi, reikningsskilum, málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd er æskileg
- Góð greiningarhæfni og færni í miðlun upplýsinga
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu mál
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
- Hreint sakavottorð
Advertisement published10. November 2025
Application deadline24. November 2025
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Katrínartún 6
Type of work
Skills
Clean criminal recordHuman relationsPrecisionCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (1)



