Háskólinn á Hólum
Háskólinn á Hólum

Rekstrarstjóri við Háskólann á Hólum

Laust er til umsóknar fullt starf rekstrarstjóra við Háskólann á Hólum.

Rekstrarstjóri veitir sviði mannauðs, gæða og rekstrar og sviði rannsókna, nýsköpunar og kennslu forstöðu. Hann vinnur náið með rektor, öðrum stjórnendum og starfsfólki háskólans og er ætlað að leiða teymi og umbótastarf með gagnadrifinni nálgun. Rekstrarstjóri situr í framkvæmdaráði háskólans og heyrir starf hans undir rektor.

Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á lögum um háskóla þar sem m.a. er fjallað um stofnun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Rekstrarstjóri mun koma að þeirri vinnu og gegna mikilvægu hlutverki varðandi framtíð og þróun háskólastarfs við Háskólann á Hólum. Stofnun háskólasamstæðu er umfangsmikið breytingaverkefni sem felur í sér ýmsar áskoranir tengdar verkefnum rekstrarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð og eftirfylgni með daglegum rekstri, stjórnun og áætlanagerð á þeim sviðum sem undir hann heyra 
  • Ábyrgð á áætlanagerð og fjármálum skólans 
  • Ábyrgð á rekstri húsnæðis, innviðum og öryggis- og aðgengismálum  
  • Skýrslu- og samningagerð 
  • Greining og miðlun upplýsinga til stuðnings stefnumótandi ákvarðanatöku 
  • Seta í framkvæmdaráði háskólans og ýmsum nefndum og ráðum 
  • Samskipti og upplýsingamiðlun til nemenda, kennara, stjórnenda og starfsfólks skólans  
  • Samstarf og samskipti við ýmsa ytri hagaðila og aðra háskóla 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er æskilegt 
  • Reynsla af stjórnun 
  • Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlanagerð 
  • Reynsla af gæða- og stefnumótunarstarfi er æskileg 
  • Reynsla af uppbyggingu teyma og breytingastjórnun er kostur 
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur 
  • Leiðtoga- og samskiptahæfni, frumkvæði og umbótamiðuð hugsun 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og á riti 
  • Góð tölvukunnátta, þar á meðal í Excel, reynsla af Power BI er æskileg
Advertisement published19. May 2026
Application deadline26. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hólar 146440, 551 Sauðárkrókur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Quality tracking systems
Professions
Job Tags