

Ráðgjafar á Blönduhlíð
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?
Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða ráðgjafa á Blönduhlíð, meðferðarheimili fyrir unglinga. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% stöðu í vaktavinnu sem heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.
-
Umönnun og gæsla unglinga.
-
Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra, sálfræðinga og forstöðumann.
-
Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með unglingum.
-
Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
-
Vinna eftir verklagsreglum.
-
Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
-
Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í meðferðar-, tómstunda-, íþróttastarfi eða öryggisgæslu.
-
Góð færni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
-
Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
-
Gild ökuréttindi.
-
Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.


