
Lágafellsskóli
Lágafellsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10.bekk. Nemendafjöldi er um 580.
Unnið er í anda uppbyggingarstefnunnar þar sem meigináhersla er lögð á að byggja upp sjálfstraust og sjálfsstjórn nemenda ásamt því að leiðbeina nemandanum til að verða sá sem hann vill verða.
Að kennslu lokinni gefst nemendum 1.-4. bekkjar kostur á lengdri viðveru í Frístund sem starfrækt er innan skólans. Frístund Lágafellsskóla er mjög vel sótt og eru þar um 160 nemendur við leik og skipulagða klúbbastarfsemi daglega.
Lágafellsskóli stendur við Lækjarhlíð 1 Mosfellsbæ. Bólið, félagsmiðstöð nemenda í 5.-10.bekk stendur á lóð skólans.
Skólinn samanstendur af öflugu starfsfólki sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum. Fjöldi starfsmanna er um 100.

Lágafellsskóli - umsjónarkennari á yngsta
Lágafellsskóli leitar að áhugasömum umsjónarkennurum á yngsta stig
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.
Um er að ræða framtíðarstarf í 80-100% starfshlutfalli við umsjónarkennslu á yngsta stigi. Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2026.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara með áherslu á grunnskóla
- Mjög góð íslenskukunnátta eða sem samsvarar C1 í Evrópska tungumálarammanum
- Vilji og hæfni til teymisvinnu með öðrum kennurum
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
- Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Advertisement published18. May 2026
Application deadline1. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
Clean criminal recordTeacherTeachingHuman relations
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Leikskóli Húnabyggðar
Húnabyggð

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær

Kennarar og þroskaþjálfi óskast frá ágúst 2026
Leikskólinn Sumarhús

Deildarstjóri í Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Leikskólakennarar óskast í Krikaskóla fyrir næsta skólaár
Krikaskóli

Umsjónarkennari í Varmárskóla
Varmárskóli

Sjálandsskóli - kennari í hönnun, smíði og nýsköpun
Garðabær

Umsjónarkennarar óskast til starfa í 4. og 5. bekk í Lindaskóla
Lindaskóli

Kennarastaða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Urriðaholtsskóli - Frístundaleiðbeinandi í Urriðakot
Garðabær