Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda. Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila ásamt vísindastörfum verður einnig mikilvægur hluti af starfinu.

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meðferð og eftirfylgni barna með fjölbreyttan taugaþroska
  • Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd
  • Umsjón og yfirsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps
  • Þverfagleg teymisvinna
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu þjónustu 
  • Ráðgjöf og fræðsla 
  • Skipulagning fræðslu til barna og fjölskyldna þeirra
  • Námskeiðshald
  • Heilsumælingar og ráðgjöf
  • Samvinna við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
  • Meistaranám eða diplómanám í geðhjúkrun kostur
  • Reynsla sem nýtist í starfi 
  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu kostur
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
  • Faglegur metnaður, góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf 
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð Íslenskukunnátta, færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg
Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur 

Samgöngustyrkur

Advertisement published13. November 2025
Application deadline8. December 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags