Bláa Lónið
Bláa Lónið
Bláa Lónið

Framleiðslustarf í Rannsókna- og þróunarsetri Bláa Lónsins

Spennandi starf við framleiðslu í Rannsókna- og þróunarsetri Bláa Lónsins í Svartsengi er í boði fyrir öflugan og lausnamiðaðan einstakling. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd vinnslu lífvirkra efna úr jarðsjó auk umsjónar með ýmsum tækjabúnaði. Um er að ræða tækifæri til að vinna að nýsköpun og hagnýtingu náttúruauðlindar sem á sér enga hliðstæðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Efnafræði, tæknimenntun eða önnur menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Lyftararéttindi
  • Reynsla af framleiðslustörfum er kostur
  • Reynsla af rekstri og umsjón tækjabúnaðar er kostur
  • Gott verkvit og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Gott vald á íslensku og/eða ensku
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð líkamleg heilsa
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem nýsköpun og sífelld þróun eru í forgrunni. Starfið felur í sér fjölbreyttar og krefjandi áskoranir ásamt fríðindum svo sem heilsuræktarstyrk og aðgang að öflugu starfsmannafélagi.

Starfsstöðin er í Rannsókna- og þróunarsetri Bláa Lónsins í Svartsengi.

Bláa Lónið starfar samkvæmt vottaðri gæðastjórnun ISO 9001:2015, öryggisstjórnun ISO 45001 og umhverfisstjórnun ISO 14001 sem tryggja fagleg vinnubrögð, öryggi starfsfólks og virðingu fyrir umhverfinu

Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veita mannauðssérfræðingar Bláa Lónsins í síma 420-8800.

Advertisement published12. November 2025
Application deadline25. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Norðurljósavegur 9, 240 Grindavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags