

Framkvæmdarstjóri sölu og þjónustu
Securitas leitar að reyndum og árangursdrifnum einstaklingi í starf framkvæmastjóra sölu og þjónustu. Viðkomandi leiðir kraftmikinn hóp sem starfar í fjölbreyttu og spennandi umhverfi að því að tryggja framúrskarandi þjónustuupplifun til einstaklinga og fyrirtækja. Framkvæmdastjóri sölu og þjónustu situr í framkvæmdastjórn félagsins.
Starfssvið
Framkvæmdastjóri sölu og þjónustu leiðir stefnumótun félagsins í málaflokknum, ber ábyrgð á sölu, ráðgjöf, þjónustu og upplifun viðskiptavina. Jafnframt ber viðkomandi ábyrgð á daglegri stýringu og rekstri sviðsins, styður við teymi sérfræðinga á sviðinu og stuðlar að framþróun í rekstri. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af stefnumótun og markmiðasetningu og búa yfir leiðtogahæfni til að leiða ólík teymi eftir stefnu og framtíðarsýn fyrirtækisins.
Þekking og reynsla
- Leiðtogahæfileikar
- Farsæl stjórnendareynsla
- Yfirgripsmikil reynsla af sölu- og þjónustumálum
- Markmiða- og lausnamiðuð hugsun
- Reynsla af gagnadrifinni ákvörðunartöku
- Gott auga fyrir nýjum hugmyndum
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Söludrifið hugarfar
- Háskólamenntun við hæfi
Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember nk. Sótt er um starfið á hagvangur.is Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, [email protected]
Icelandic





