
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur átta gagnaver á Norðurlöndum. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.

Finance Business Partner (Group Finance)
atNorth er í örum vexti og nú leitum við að öflugum Finance Business Partner til að taka að sér lykilhlutverk á fjármálasviði. Um er að ræða verkefni fyrir reynslumikinn aðila sem hefur áhuga á að hafa bein áhrif á stefnumarkandi ákvarðanir og framtíðarsýn fyrirtækisins.
Starfið býður upp á tækifæri til að vinna þvert á starfsemi atNorth, en viðkomandi ber ábyrgð á langtímaáætlanagerð félagsins og styður þannig beint við ákvarðanatöku stjórnenda, eigenda og lánveitenda.
Ef þú hefur áhuga á að hafa raunveruleg áhrif á fjárfestinga- og fjármögnunarstefnu vaxandi félags í spennandi atvinnugrein gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða þróun og viðhald á fjárhagslíkani samstæðunnar
- Drífa stefnumarkandi áætlanagerð og sviðsmyndagreiningar
- Meta fjárfestingar, viðskiptatækifæri og lykilákvarðanir félagsins
- Veita stjórnendum, eigendum og lánveitendum gagnadrifinn stuðning við ákvarðanir
- Meta fýsileika fjármögnunarkosta og styðja við fjármögnunarferli
- Samræma langtíma- og skammtímaspár og drífa umbætur á fjárhagslegum mælikvörðum
- Byggja upp öflugri fjárhagslega innviði með umbótum á líkönum, gögnum og ferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða í fjármálum, hagfræði, reikningshaldi eða skyldum greinum
- Haldbær reynsla úr FP&A, Finance Business Partnering, fjármálaráðgjöf, fjárfestingarbanka eða Private Equity
- Reynsla af gerð fjárhagslíkana, fjárfestingargreiningum og áætlanagerð
- Hæfni til að miðla flóknum gögnum til stjórnenda
- Mjög góð greiningarhæfni, Excel kunnátta og reynsla af ERP/EPM og BI lausnum
- Sjálfstæð, drífandi og skipulögð vinnubrögð, gagnrýnin hugsun
- Sterk samskiptahæfni og geta til að hafa áhrif í krefjandi og síbreytilegu umhverfi
Advertisement published22. May 2026
Application deadline31. May 2026
Language skills
IcelandicOptional
EnglishRequired
Location
Steinhella 10, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Fjármálastjóri
Sveitarfélagið Skagafjörður

Viðskiptastjóri - Samskip innanlands
Samskip

Sérfræðingur - Bókhaldsþjónusta
Fjársýslan

Microsoft Dynamics 365 F&O consultant (ráðgjafar)
HSO Iceland

Sérfræðingur í viðskiptagreind, gervigreind og hagnýtingu gagna
Orka náttúrunnar

Viðskiptastjóri í Einkabankaþjónustu
Landsbankinn

Deildarstjóri Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu
Landsbankinn

Innkaupa- og rekstrarsérfræðingur hjá Mosfellsbæ
Mosfellsbær

Sérfræðingur í húsnæðislánum
Íslandsbanki

Fjármálastjóri
Menntasjóður námsmanna

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs: Verkefnastjóri fjármála og rekstrar
Akureyri

Business Central ráðgjafi
Advania