Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Félagsráðgjafi á heilsugæslu HSU, Selfossi

Laust er til umsóknar 80-100% starf félagsráðgjafa við heilsugæsluna á Selfossi.

Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum félagsráðgjafa til starfa við heilsugæslu HSU, Selfossi.

Um ábyrgðarmikið og krefjandi starf er að ræða og spennandi vettvang fyrir félagsráðgjafa sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.

Viðkomandi þarf að búa yfir færni til að vinna sjálfstætt, lausnamiðað og hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsráðgjafar í heilsugæslu HSU

  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki heilsugæslunnar

  • Einstaklingbundin viðtöl og ráðgjöf sem lítur að framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum

  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s.heilbrigðisstofnanir, félagsþjónustur, vinnumálastofnun, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi skilyrði

  • Viðtæk starfsreynsla og/eða reynsla af sambærilegu starfi kostur

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsráðgjafar í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Advertisement published10. November 2025
Application deadline20. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags