Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Brennur þú fyrir sjálfbæra nýtingu, vernd og endurheimt vistkerfa?

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að sérfræðingi með mikinn áhuga á velferð íslenskrar náttúru til þess að starfa með hópi sérfræðinga á skrifstofu náttúru- og minjaverndar hjá ráðuneytinu.Um er að ræða stöðu sérfræðings á sviði verndar og endurheimtar vistkerfa og sjálfbærrar auðlindanýtingar sem kemur til með að vinna að þeim málaflokki í æðstu stjórnsýslu landsins.

Starfið felur í sér krefjandi og metnaðarfull verkefni sem snúa að málefnum endurheimtar vistkerfa, auðlindanýtingar og líffræðilegrar fjölbreytni og eru framkvæmd í samstarfi við hag- og fagaðila og eftir stefnu ríkisstjórnar og áherslum ráðherra. Viðkomandi kemur til með leiða verkefni og taka þátt í stefnumótun sem og alþjóðlegu starfi á starfssviði skrifstofunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með málefnum endurheimtar vistkerfa

  • Leiða verkefni sem snúa að samspili auðlindanýtingar, loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni.

  • Leiða verkefni sem snúa að endurheimt vistkerfa á landi og í hafi

  • Vinna að verkefnum sem snúa að virkri stjórn og vernd vistkerfa.

  • Stefnumótun og eftirfylgni verkefna á starfssviði skrifstofunnar

  • Þátttaka í alþjóðlegu starfi á starfssviði skrifstofunnar

  • Samstarf við önnur ráðuneyti og stofnanir.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi (auðlindir, vistfræði, sjálfbær nýting t.d. )

  • Reynsla af stefnumótun og eftirfylgni.

  • Geta til að leiða verkefni

  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur

  • Góð stafræn hæfni

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Mjög góð samskipta- og samvinnufærni

  • Mjög góð færni í íslensku bæði í töluðu og rituðu máli.

  • Góð enskukunnátta

Advertisement published14. May 2026
Application deadline26. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags