
DHL Express Iceland ehf
Alþjóða hraðsendingar og fraktsendingar um allan heim í lofti, á sjó, með bílum og lestum. Vöruhúsalausnir, allt frá pökkun til geymslu, póstsendingar um allan heim, sem og aðrar sérhæfðar lausnir á sviði vörustjórnunar - DHL færir þér úrval flutningsleiða og yfirburði heim að dyrum.
Að starfa fyrir DHL þýðir að taka ábyrgð, sigrast á ögrandi áskorunum og vaxa og þroskast sem hluti af fjölbreyttu alþjóðlegu starfsliði.
Nýttu þér margskonar spennandi möguleika á starfsframa til að skila góðum árangri með okkur og vera hluti af stærsta flutningafyrirtæki í heimi.
DHL býður fjölbreytt störf með mikla möguleika á öllum starfsþrepum í öllum heimshlutum. Sem starfsmaður hjá okkur færðu tækifæri til að móta með góðri vinnu í góðum hópi þína eigin framtíð bæði í starfi og leik. Saman myndum við fyrirtæki sem við getum verið virkilega stolt af.

Bílstjóri sumarstarf - Keflavíkurflugvöllur
DHL Express Iceland ehf óskar eftir að ráða í fullt starf í bílstjórateymi fyrirtækisins á starfsstöð sinni að Fálkavelli 17, 235 Keflavíkurflugvelli.
Leitað er eftir bílstjórum með almenn ökurréttindi, og meiraprófsréttindi.
Leitað er að metnaðarfullum, árangurdrifnum og sjálfstæðum einstaklingum með ríka þjónustulund sem eru reiðubúin að takast á við krefjandi verkefni í fjölbreyttu alþjóðlegu starfsumhverfi.
Um er að ræða 100% stöðugildi og er vinnutíminn 07:00-15:00 á mánudögum, 08:00-16:00 þriðjudaga til fimmtudags og 08:00-15:15 á föstudögum.
Um er að ræða sumarstarf til 31. ágúst 2026
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afhenda og sækja sendingar til viðskiptavina
- Umsýsla og vinnsla með sendingar fyrir flutning
- Samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk í öðrum deildum
- Þátttaka í öðrum verkefnum innan deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lipurð í samskiptum og góð þjónustulund
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
- Gild almenn ökuréttindi
- Tungumálakunnátta: íslenska og enska
- Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu
- Meiraprófsréttindi er kostur
Fríðindi í starfi
- Fæðisdagpeningar skv. stefnu fyrirtækisins á Íslandi
Advertisement published22. May 2026
Application deadline31. May 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Fálkavöllur 17, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
Driver's license (B)ConscientiousIndependenceCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Afgreiðsla - Lager Vöruhús
Vatnsvirkinn ehf

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - sumarstarf
DHL Express Iceland ehf

Hópstjóri vörumóttöku
BAUHAUS slhf.

Sumarstarf við lager og áfyllistörf
Linde Gas ehf

Bílstjóri - Afgreiðsla
Vaka hf

Bílstjóri
A. Margeirsson ehf

Starfsmaður í vöruhús í Reykjavík
Vörumiðlun ehf

Steypudælubílstjóri (Concrete Pump Operator)
Steypustöðin

Starfsmaður í útkeyrslu
Autoparts.is

Olís Njarðvík óskar eftir bílstjóra í sumarvinnu
Olís ehf.

Steypubílstjóri á Selfossi - Tímabundið
Steypustöðin

Steypuhrærari á Selfossi - Tímabundið
Steypustöðin