Borgarholtsskóli
Borgarholtsskóli

Aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla

Í reglugerð nr. 100/2007 um starfslið og skipulag framhaldsskóla segir

eftirfarandi:

Skólameistari ræður aðstoðarskólameistara að höfðu samráði við

skólanefnd til allt að fimm ára í senn að undangenginni opinberri auglýsingu.

Aðstoðarskólameistari skal uppfylla skilyrði í ákvæðum laga um lögverndun á starfsheiti

og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.

Endurráðning er heimil að undangenginni auglýsingu. Aðstoðarskólameistari er

staðgengill skólameistara og vinnur með honum við daglega stjórn skólans og rekstur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og vinnur með honum við daglega

stjórn skólans. Í starfinu felst m.a. að:

- vera yfirmaður skrifstofufólks

- bera ábyrgð á móttöku kennara,

- vinna að kennsluskiptingu,

Auk þess sinnir aðstoðarskólameistari þeim verkefnum öðrum sem skólameistari felur

honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

Umsækjandi skal hafa lokið framhaldsnámi á háskólastigi, hafa starfsheitið

framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á

framhaldsskólastigi. Hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvægt atriði.

Advertisement published22. May 2026
Application deadline5. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Mosavegur 1A, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags