Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Acrobat Pro og önnur samskiptatól í hönnun

Bættu yfirsýn og skilvirkni í hönnunarferlinu með markvissri nýtingu samskiptatólum eins og Acrobat Pro og WordsFlow sem geta stóraukið verkflæði –en ekki síður ánægju.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vinna með skjöl í skapandi ferlum og vilja bæta samskipti við samstarfsaðila og viðskiptavini.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist færni til að nýta Acrobat Pro og ýmis önnur tól til þess að liðka samvinnu, yfirferð og samþykktarferli skjala á skilvirkan hátt í hönnunarferlinu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hlutverk Acrobat í hönnunarumhverfi.
  • Hvernig WordsFlow bjargar deginum með beinu sambandi Word-sjala inn í InDesign.
  • Leiðir til þess að útbúa hönnunarskjöl fyrir samvinnu og athugasemdir.
  • Notkun „share for review“.
  • Athugasemdir, samskipti og samþykktir beint í Acrobat Pro.
  • Skipulag athugasemda frá mörgum aðilum.

Að loknu námskeiði á þátttakandi að:

  • Geta deilt skjölum í Acrobat pro og kallað eftir athugasemdum.
  • Geta nýtt WordsFlow með textahöfundi sem getur breytt texta sem er verið að vinna með án þess að allt fari í skrúfuna.
  • Geta sett upp samþykktarferli með rafrænum leiðum í pdf skjölum
  • Geta bætt inn og sinnt yfirferð á athugasemdum í hönnunarskjölum.
  • Geta nýtt Acrobat Pro til þess að samræma samskipti milli hönnuða, viðskiptavina og samstarfsaðila.
Hefst
12. nóv. 2025
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar