Smyril Line Ísland ehf.
Smyril Line Ísland ehf.
Smyril Line Ísland ehf.

Tækjamaður

Smyril Line Ísland auglýsir eftir reynslumiklum og þjónustulunduðum einstaklingi til að takast á við starf tækjamanns í Þorlákshöfn. Viðkomandi mun starfa í hópi metnaðarfullra starfsmanna sem sinna flutningaþjónustu við viðskiptavini félagsins í inn- og útflutningi.

Um er að ræða fullt starf á starfsstöð félagsins í Þorlákshöfn. Vinnutími er 8:30 til 16:30 virka daga og lengur á skipadögum. Skipadagar eru mánudagar, miðvikudagar og föstudagar. Starfið er í senn fjölbreytt og krefjandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Losun og lestun skipa og vagna
  • Vörumóttaka og afgreiðsla sendinga
  • Þjónusta og samskipti við viðskiptavini félagsins
  • Önnur tilfallandi verkefni sem svæðisstjóri leggur til
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almenn ökuréttindi
  • Lyftarapróf
  • Meirapróf er kostur
  • Öryggisvitund
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
Auglýsing stofnuð2. maí 2024
Umsóknarfrestur24. maí 2024
Staðsetning
Hafnarskeið 7, 815 Þorlákshöfn
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Lyftarapróf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar