Svæfingahjúkrunarfræðingar - Svæfingadeild í Fossvogi
Við óskum eftir að ráða til starfa metnaðarfulla hjúkrunarfræðinga með sérhæfingu í svæfingahjúkrun. Í boði er starf á frábærum vinnustað þar sem samvinna, faglegt starf, þróun og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Unnið er í vaktavinnu á þrískiptum vöktum. Starfshlutfall er 60% og eru störfin laus frá 1. júlí 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Áhugasömum umsækjendum sem vilja starfa í hærra starfshlutfalli er bent á að laus eru til umsóknar störf á ýmsum deildum skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.
Á svæfingadeild Landspítala í Fossvogi starfa um 30 svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Við bjóðum upp á góðan vinnustað þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, framþróun og þjálfun eftir þörfum hvers og eins.