Mi búðin
Mi búðin
Mi búðin

Sölufulltrúi í verslun

Mi búðin leitar að hressum, metnaðarfullum og jákvæðum sölufulltrúum í fjölbreytt og skemmtileg störf. Um tvö störf er að ræða, fullt starf og hlutastarf. Báðar stöður geta verið sumarstarf og áframhaldandi starf eftir sumarið. Spennandi vettvangur með mikla möguleika fyrir rétta aðila til þess að vaxa og dafna með ört stækkandi fyrirtæki.

Vinnutími fyrir fullt starf er 10-18 alla virka daga.
Vinnutími fyrir hlutastarf er samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiða viðskiptavini.
  • Svara síma, tölvupóstum og samfélagsmiðlum.
     
  • Skrifa vörulýsingar.
     
  • Afgreiða netpantanir.
     
  • Halda verslun snyrtilegri.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi sölumennska.
     
  • Reynsla af sölustarfi æskileg.
     
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
     
  • Þekking á raftækjum og áhugi á tækninýjungum.
     
  • Gott vald á íslenskri tungu, bæði í skrifuðu- og töluðu máli.
     
  • Góð almenn tölvukunnátta.
     
  • Gott skipulag.
Fríðindi í starfi
  • Ný og spennandi raftæki.
  • Skemmtilegt og hlýtt starfsumhverfi.
  • Möguleiki á vexti í starfi.
Auglýsing stofnuð1. maí 2024
Umsóknarfrestur31. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Ármúli 21, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar