Útlendingastofnun
Útlendingastofnun
Útlendingastofnun

Sérfræðingur

Útlendingastofnun leitar að kraftmiklum sérfræðing til starfa hjá stofnuninni. Verksvið sérfræðings er fjölbreytt, t.a.m. viðtöl við umsækjendur, afgreiðsla umsókna, samskipti við innlend og erlend stjórnvöld og önnur tilfallandi verkefni. Í starfinu geta falist ferðalög. Sérfræðingur heyrir undir teymisstjóra.

Útlendingastofnun er spennandi vinnustaður á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá stofnuninni starfar um 110 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig vegabréfsáritanir, umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, sveigjanlegan vinnutíma og kost á fjarvinnu. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðtöl við umsækjendur
  • Úrvinnsla umsókna
  • Samskipti við innlend og erlend stjórnvöld
  • Þátttaka í gerð og þróun verkferla
  • Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
  • Ráðgjöf til þjónustuþega Útlendingastofnunar
  • Þátttaka í teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BA gráða sem nýtist í starfi (t.a.m. félagsfræði, sálfræði, mannfræði, félagsráðgjöf, stjórnmálafræði)
  • Meistaragráða sem nýtist í starfi er mikill kostur
  • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Kunnátta í spænsku, úkraínsku, rússnesku eða arabísku er kostur
  • Áhugi á stafrænum lausnum og þróun verkferla
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur16. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
SpænskaSpænskaGrunnfærni
Staðsetning
Bæjarhraun 18, 220 Hafnarfjörður
Dalvegur 18, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar