Securitas
Securitas
Securitas

Öryggisvörður í spennandi verkefni

Vilt þú starfa við að auka öryggi viðskiptavina okkar?

Við hjá Securitas leitum að kraftmiklum og jákvæðum liðsauka í spennandi verkefni í staðbundinni gæslu á höfuðborgarsvæðinu. Rík áhersla er lögð á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda. Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingum sem eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum og auka öryggi viðskitpavina okkar.

Um er að ræða tvö stöðugildi
  • 100% starf í vaktavinnu. Unnið 7 daga í senn og 7 daga í frí, á 12 tíma vöktum, ýmist nætur- eða dagvaktir.
  • Hlutastörf 20%-50% starf í dag- eða kvöldvinnu og aðra hvora helgi.

Ef þú...

  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
  • Býrð yfir góðri íslenskukunnáttu
  • Hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni
...þá erum að leita af þér!

Við hvetjum öll kyn sem eru 20 ára eða eldri og eru með hreint sakavottorð til þess að kynna sér starfið nánar og sækja um sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast.

Umsóknarfrestur er til og með 22. maí nk. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ísleifur Árnason, deildarstjóri staðbundnar gæslu í síma: 580-7000.
Auglýsing stofnuð8. maí 2024
Umsóknarfrestur22. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar