Baugur
Baugur
Baugur

Leikskólasérkennari / Ekki sumarstarf

Í Baugi starfa milli 50 og 60 manns sem sameinast á hverjum degi um það að hafa gaman. Gleði er að okkar mati lykillinn að starfsánægju. Við höfum gert með okkur sáttmála sem stuðlar að vellíðan starfsfólks en skýr, skilvirk, hlý og jákvæð samskipti eru þar í forgrunni. Samvinna og metnaður til að gera vel sameinar okkur alla daga og skapar okkar frábæru liðsheild!

Leikskólinn Baugur er 8 deilda leikskóli með 143 börnum í Kórahverfi í Kópavogi. Leikskólinn leggur áherslu á að skapa fjölbreytilegt leikumhverfi sem ýtir undir ímyndunarafl, sköpunarkraft og tjáningu barnanna. Unnið er að innleiðingu "Uppeldi til ábyrgðar" en finna má nánari upplýsingarum leikskólann á http://baugur.kopavogur.is/.

Vekjum athygli á nýjum nálgunum er varða bætt starfsumhverfi barna og kennarar í leikskólum Kópavogs. Sjá nánar hér

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólasérkennara- eða þroskaþjálfamenntun (eða starfsmaður með sambærilega menntun/reynslu)
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Upphaf starfs, 8. ágúst 2024 eða samkomulag
  • Starfshlutfall er 100 %

Starfskröfur

Unnið er samkvæmt starfslýsingum Félags leikskólakennara en starfslýsingu leikskólasérkennara má finna á http://ki.is.

Starfið er innan sérkennlsudeildar leikskólans og unnið er með börnum með sérþarfir og/eða hegðunarvandkvæði.

Ef ekki fæst leikskólakennari eða þroskaþjálfi verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara/Starfsmannafélags Kópavogs.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Upplýsingar gefa Margrét Björk, leikskólastjóri í síma 441-5601 og Elín Rós, aðstoðarleikskólastjóri í síma 441-5602 eða með því að senda póst á baugur@kopavogur.is

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • kennsla barna með sérþarfir
  • Ýmis verkefni er varða uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum
  • Gerð einstaklingsnámskráa
  • Samskipti við foreldra og fagmenn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni við að vinna í hóp
  • Gott vald á íslensku
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuviku
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Baugakór 36, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar