Fulltrúi hjá byggingarfulltrúa - sumarstarf
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann í fjölbreytt sumarstarf sem fulltrúi hjá byggingarfulltrúa. Vinnutímabil er frá maí út ágústmánuð. Um er að ræða 100% sumarstarf. Á umhverfis- og skipulagssviði eru um 50 stöðugildi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skoðunar- og eftirlitsferðir innan Hafnarfjarðar
- Almenn skrifstofustörf og skráning
- Skráning gagna og utanumhald
- Ýmis þjónusta við viðskiptavini varðandi fyrirspurnir og framfylgni þeirra
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi
- Bílpróf og bíll til umráða skilyrði
- Góð reynsla af sambærilegu starfi
- Almenn, góð tölvukunnátta, svo sem Excel og Word
- Samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni
- Góð framkoma og almenn kurteisi
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Íslenskukunnátta nauðsynleg
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, netfang: hildur@hafnarfjordur.is eða símleiðis 585-5670.
Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2024. Æskilegt að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.