Icewear
Icewear var stofnað árið 1972 á Hvammstanga undir nafninu Drífa en þá var fyrirtækið rekið sem prjónastofa sem framleiddi íslenskar ullarvörur. Í dag er fyrirtækið betur þekkt undir nafninu Icewear, sem jafnframt er aðal vörulína fyrirtækisins.
Icewear er leiðandi vörumerki á útivistarmarkaði og býður upp á fjölbreytt úrval af útivistarfatnaði og fylgihlutum. Icewear er fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri samkvæmt Keldunni og starfar eftir jafnlaunavottun. Verslanir Icewear eru í dag 26 talsins en auk þess er Icewear með öfluga vefverslun og fjöldi starfsfólks er um 250 manns.
Framendaforritari
Icewear óskar eftir að ráða framendaforritara í forritunarteymi fyrirtækisins. Icewear er framsækið fyrirtæki í miklum vexti þar sem stafrænir innviðir og sjálfvirknivæðing þjónar lykilhlutverki, þ.e. allt frá því að viðskiptavinur verslar í netverslun, yfir í öflug bakvinnslukerfi sem og skilvirka ferla fyrir birgðastjórnun, pökkun og afhendingu. Vinnustaðurinn er frábær vettvangur fyrir þá sem vilja taka þátt í krefjandi og skapandi verkefnum hjá vaxandi tækniteymi fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun á framenda fyrir hinu ýmsu kerfi sem fyrirtækið hefur þróað og hannað fyrir innri ferla fyrirtækisins.
- Samskipti og náin samvinna við bakendaforritara, ráðgjafa og hönnuði og gefur því mikið svigrúm til að taka þátt í að leysa flókin og krefjandi verkefni í öflugu teymi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla í framendaforritun er skilyrði
- Góð þekking á Typescript/Javascript, React, HTML og CSS
- Reynsla af NextJS mikill kostur
- Reynsla af UI/UX þróun er kostur
- Reynsla af bakendatækni er kostur (Python, SQL)
- Þekking á SQL, gagnagreiningu og skýrslutólum (PowerBi, Google Analytics) nýtist í starfi
Auglýsing stofnuð19. apríl 2024
Umsóknarfrestur30. apríl 2024
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Senior Software Engineer
DTE
Security and Compliance Specialist
LS Retail
Verkefnastjóri í upplýsingatækniráðgjöf
Deloitte
Lausnamiðaður ráðgjafi
Deloitte
Sérfræðingur í upplýsingatækni
Innnes ehf.
Sérfræðingur í viðskiptagreind (BI)
Expectus
Sérfræðingur í gervigreind
AVIA
Developer
Bláa Lónið
Business Central PLÚS forritari óskast
JYSK
Kerfisstjóri óskast hjá einum stærsta smásöluaðila á Íslandi
JYSK
Hugbúnaðarsérfræðingur
Reiknistofa lífeyrissjóða
Junior Data Engineer
CCP Games