Flink manneskja í vörubílaviðgerðir
Veltir Xpress verkstæði atvinnubíla á Hádegismóum 8 er verkstæði fyrir vörubíla, sendibíla, vagna og rútur leitar að flinkri og duglegri manneskju með reynslu af viðgerðum.
Starfið er einstaklega lifandi og skemmtilegt þar sem unnið er við nýjustu tækni í vörubílum, rútum og vögnum í vinnuaðstöðu sem er sú besta á Íslandi. Húsnæðið er nýlegt, afhafnasvæði mjög rúmgott og framúrskarandi búnaður til viðgerða er til staðar. Allt kapp er lagt á að gera öll störf eins létt og kostur er með margvíslegum búnaði. Starfsmannaaðstaða er einstök með framúrskarandi búningsaðstöðu og gufubaði ásamt því að öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá Velti Xpress.
Við leitum að manneskju, konu eða karli, til að ganga til liðs við skemmtilegt teymi í framúrskarandi vinnuumhverfi sem þykir spennandi að vinna við nýjustu tækni í frábærum hóp tæknimanna með góðum stuðningi samstarfsmanna og stjórnenda þar sem eru miklir möguleikar til símenntunar.
Vinnutími er mán – fim 8:00-17:00 og fös 8:00-15:17. Sæktu um strax í dag og gakktu í skemmtilegan hóp fagmanna hjá Velti Xpress.
- Vinna við viðgerðir, þjónustuskoðanir og smurþjónustur á vörubílum, rútum og vögnum
- Vinna við dekkjaskipti á vörubílum, rútum og vögnum
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
- Góður skilningur á og reynsla af viðgerðum
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt
- Gilt bílpróf, meirapróf æskilegt
Margvísleg fríðindi sbr. mannauðstefnu Brimborgar.
Niðurgreiddur hádegismatur.