Ferðaþjónusta íbúðir í skammtímaútleigu
Laust er til umsóknar starf að sjá um 4 íbúðir í skammtímaleigu á Húsavík. Um er að ræða hlutastarf/framtíðarstarf en getur verið 100% maí-okt ef viðkomandi hefur áhuga á að vinna mikið í þrifum.
Í starfinu fellst meðal annars
að vera umsjónaraðilli með útleigunni og húsnæðinu
sjá um samskipti við gesti, móttaka og samskipti í gegnum app í Booking
afhending lykla er lyklabox en starfsmaður þarf að geta mætt ef eitthvað kemur uppá
dagleg þrif íbúða og þvottur og sjá um skipulag afleysinga þrifa um helgar
vinna í þvottahúsi á staðnum
Starfsmaður þarf að getað talað og skrifað ensku. Starfið er laust frá 1 maí.
Umsjón með húsnæðinu úti sem inni, samskipti við gesti, þrif á íbúðum/sameign/þvottahús, innkaup rekstrarvara, skipulag þrifa í afleysingum